|
Bókverkið S M I T gefið út í 100 eintökum fæst hjá Populus Tremula 1000 krónur. www.poptrem.blogspot.com
Smitandi
Berast frá manni til manns, milli dýrs og manns, úr umhverfi í mann – menn sleikja menn, menn sleikja dýr og menn sleikja jörðina. Sjúkdómarnir finna sér leiðir; í húðinni gröftur einsog heimspeki, gulnandi, vessandi. Núorðið eiga vörtur og kýli ekkert við líkamann, holdið er orðið hreint. Hvort heldur sem er með litlum pöddum og persónulegum, eða ópersónulegum, á þó viðbjóðurinn enn leið inn undan. Tunga, fingur, hugur. Drepið á dreif: í munnvatninu milljón bakteríur, á höndunum og hvað þá hugmyndunum! Hugmyndirnar (sem engin sóttvörn vinnur á) berast á milli á óhugsandi hraða með bráðsmitandi orðum. Líkaminn býr yfir vörnum gegn smiti, ekki hugurinn. Það er ekki til neitt vitundarslím. Hugur, fingur, tunga. Sýkingin er æsandi, síðustu leifar náttúrunnar í heimi rótarfyllinga, þar sem endajaxlar og augntennur koma engum til. Sótthiti! Í dauðhreinsaðri íslensku felast skáldleg tækniorð – læknuð dönsk tökuorð. Það er ekkert djók að transmission er í senn annaðhvort gírkassi eða smit. Og sjá ... alls staðar er upplýsing, alls staðar sjúkdómar, alls staðar sýkingar, alls staðar smitberar, alls staðar smit.
|