|
www.hlass.blogspot.com
H L A S S
Opnun 20.06.2008 18:00-20:00 21.06 - 21.07 2008
Hlynur Hallsson // Huginn Arason // Jóna Hlíf Halldórsdóttir // Karlotta Blöndal // Karen Dúa Kristjánsdóttir // Níels Hafstein // Unnar Örn Jónsson Auðarson // Habby Osk // Gunnhildur Hauksdóttir
Hugmyndin á bak við sýninguna er að setja óvenjulegan bæjarviðburð í hversdagslegt sveitaumhverfi. Hvetja fólk til þess að koma að Hálsi, njóta náttúrudýrðarinnar, ganga upp að Hraunsvatni, minnast ljóða Jónasar Hallgrímssonar og fá sér góðan mat á Halastjörnunni. Hlaðan stendur í dag að miklu leyti ónýtt en með því að halda þar sýningu er hægt að sýna möguleikana sem felast í þessum ónýttu rýmum til sýningarhalds eða annarra viðburða, en þannig er farið með fleiri hlöður á landinu en að Hálsi. Þannig er hægt að glæða þær lífi og skapa úr þeim nýtt umhverfi, og koma þannig lífi í þessar undirstöður sveita landsins. Það er þekkt fyrirbæri að menningarviðburðir á fáförnum slóðum dregur fólk að, og sáir skapandi frjókornum í huga þeirra sem þangað koma. Þannig ganga gömul rými oft í endurnýjun lífdaga og fá á endanum nýtt hlutverk eftir að listamenn hafa bent á möguleikana sem í því felast. verkefnastjóri: Jóna Hlíf Halldórsdóttir
|